Útskriftarárgangur 2000
23.06.2005 11:41:07 / MA2000

Næsta heimasíða í vinnslu

... og þá var kátt í höllinni  :haha::lol:  takk fyrir síðast

Hugbúnaðarverkfræðingarnir Simmi og Tommi hafa tekið að sér að setja upp heimasíðu fyrir næsta reunion. Opnun síðunnar verður einhvern tímann á næstu fimm árum, ekki verra að opna öllara þegar það kemur að því 8| 

Endilega skiljið eftir komment ef þið vitið um myndasíðu með myndum af reunioninu okkar.


» 42 hafa sagt sína skoðun

13.06.2005 16:05:42 / MA2000

ALLT AÐ GERAST - EN SAMT SUMT EKKI! GLEÐILEGA AFMÆLISVIKU

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Þá er vika gleði og glaums gamlla MA-inga gengin í garð með tilhlökkun og eftivæntingu. Fagra Akureyri bíður spennt komu okkar, sem munum stíga dans, drekka öl og fagna í hópi góðra og gamalla vina.

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Upplýsingaflæði varðandi atburði vikunnar hefur verið misjafnlega gott og er því ráð að bæta aðeins úr því svona á síðustu stundu ;)

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Eins og flestir vita átti gleðin að hefjast í Skagafirði á þriðjudagskvöld með sumarbústaðaferð, River-rafting og gítarsöng. Sökum dræmrar þátttöku sá nefndin sig því miður tilneydda til að blása þann atburð af. Heyrst hefur þó að einhverj hörkutól sem ekki taka nei fyrir svar ætli þrátt fyrir allt a.m.k. að hafa smávegis sumarbústaðagleði. (Heiður er þaðekki?!)

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Annað fylgir áætlun. Á miðvikudagskvöld heldur hver bekkur partý fyrir sig og sýna – upp úr kl. 22:00 liggur leiðin á Amor þar sem allir bekkir sameinast í eina allsherjar gleði á efri hæðinni. Þar verður jafnvel opið til kl. 02:00!!

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Mér hefur reyndar borist til eyrna að illa gangi hjá sumum bekkjum að finna góðviljaðan bekkjarfélaga til að hýsa partý. Greinilegt að sumum Akureyringanna finnst gömlu bekkjarfélagarnir eitthvað óskemmtilegir –getur það verið??!!<span style=""mso-spacerun: ">  Nefni enga bekki en GGGGGæti UUUUUUngur XXXXXXlitningur búið í frystikistu??

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Að sjálfsögðu er F-ið löngu búið að finna pláss fyrir sig og sína hjá heiðursmanni Hólmari enda um einstaklega töff bekk að ræða ;)

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og deila gleði sinni eins og vindurinn (courtesy of Þóra Magnea), drekka eins og svampurinn og dansa eins og sólargeislinn!!!

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Hlakka til að sjá ykkur öll –

<p class="\"MsoNormal\"" style=""MARGIN: "><span lang="\"IS\"" style=""mso-ansi-language: ">Erla María (from the F)

 

 

 

 

 


» 63 hafa sagt sína skoðun

20.04.2005 11:39:16 / MA2000

Nú liggur á...

að allir fari að svara með þáttöku, því við eigum að skila endanlegu svari til 25 ára stúdenta 10.maí:!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!:

» 51 hafa sagt sína skoðun

06.04.2005 11:45:02 / MA2000

Fundur 2....

Nú á póstur að hafa borist til allra bekkja þar sem þeir eru beðnir um að láta vita í hverju þeir koma til með að taka þátt í. Ef þið hafið ekki fengið bréfið, látið þá vita og þið fáið bréf sent sem fyrst. Munið bara eftir að láta e-mailið ykkar fylgja.

Vona að þið verðið duglegri að svara en verið hefur (þetta á allavega við um 4-F) fékk held ég 4 svör og gerði því ráð fyrir að aðeins 2 kæmu pottþétt. Hér að neðan er svo dagskráin sem þið áttuð að fá.

Dagskrá:
 
- Þri.
Keyrt verður úr bænum í Varmahlíð í Skagafirði (þeir sem eru á Akureyri renna líklegast í fjörðinn til móts við okkur hin) þar sem við byrjum á útilegu/sumarhúsa/heitupotta fylleríi. Þar er miðað við að vera komið fyrir kl. 14.00 en þá er áætlað að dagskrá hefjist.  Þar er í boði, Rafting, hestaferð, klettasig eða annað dúllerí.  Aðallega yrði valið á milli Rafting og Hestaferðar. Gert er ráð fyrir að dægrardvöl og ýmis ævintýri verði stunduð til um 20-21 um kvöldið en þá munu Ævintýraferðir taka á móti okkur í sumarbústaðaþyrpingunni sem er með heitapotti í miðjunni, og grilla fyrir okkur kvöldverð og svo drukkið fram eftir nóttu. 

 
- Mið.
Keyrt verður um leið og unnt er til Akureyrar  og þar komið sér fyrir. Skellt sér í Brynju og jafnvel sund. Þá verða stunduð bekkjarpartý í boði heimamanna, þar verður að sjálfsögðu Greifapizzan í hávegum höfð ásamt ráðlögðum ársskammti af alkahóli. Miðað er við að þeim ljúki um 23.00 um kvöldið og þá flytjum við okkur í sal á Óseyri eða jafnvel Dátann e.t.v.  og svölum, þá gríðarlegum, þorsta  okkar saman.

 
- Fim.
Gerum ráð fyrir að sinna þynnku að mestu leiti þennan dag og safna okkur saman fyrir aðalið.  En við búumst við að hittingur verði um 17-18 seinnipart þessa dags og þá tekur stærsta kvöldið við en þá getum við djammað eins og tittlingar öll sömul því þegar að þessu kemur erum við búin að rifja upp alla taktana  á undirbúningstímanum sem er tveir dagarnir fyrir 16.júní.

 
 
Einnig munum við athuga með möguleika á gistingu fyrir þá sem vilja keyra norður í Skagafjörð á mánudagskvöldinu.
  
kv.
- nefndin -



Rósa María


» 109 hafa sagt sína skoðun

07.03.2005 09:26:57 / MA2000

Mæting...

eru allir búnir að heyra í öllum í sínum bekk???? hef ekki enn náð í alla, er að bíða eftir að fólk láti vita í hverju þeir ætli að taka þátt í...verðum að hafa fund bráðum og koma þessu á hreint, við hittumst eftir 101 dag....

rósa


» 75 hafa sagt sína skoðun

17.02.2005 10:02:42 / MA2000

4-F

Ég hef enn ekki nokkur e-mail hjá mínu fólki og hef því miður fengið of fá svör frá bekknum.... sá eini sem ég veit að kemur ekki til með að koma úr bekknum er Himmi en hann verður í námsferði í útlandinu...mig vantar e-mail hjá þessum krökkum endilega látið vita ef þið vitið þau:, já eða hef ekkert svar fengið frá sumum og því ekki viss um að mailin séu rétt:

Snorri, Sigga Ásta, Ragnhildur, Ólöf Ása, Kata, Heiða, Herdís, Kristín, Hildur Inga.

Kveðja Rósa María


» 115 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 12:05:40 / MA2000

1. fundur

Hæ, nú er einn fundur búinn og var hann haldinn á Ara í Ögri og mættu færri en vildu. Stebbi, Heiður, Ásta og Lóa. Lára og Rósa komust ekki. :)

Niðurstöður fundarins munu berast ykkur með email frá nefndaraðila hvurs bekks fyrir sig á næstu dögum. Við viljum að þið kannið vel tímasetninguna en hún gæti verið óheppileg einhverjum en þá er ekki ráð nema í tíma sé tekið !  :D  Það verður met mæting hjá okkur og við gerum þetta af krafti. 

Ef þið hafið ástæðu til að ætla að þið séuð ekki á póstlistum bekkja ykkar þá skiljið emaila ykkar eftir hér í comment hólfinu.

Svariði bekkjarpóstum með "Reply to All" þannig að hressilegar umræður myndist og jafnvel heiftarleg rifrildi, það hafa allir gott af því.

Að lokum segi ég fyrir hönd nefndarinnar:  Drulliði í ykkur !! :haha:


» 84 hafa sagt sína skoðun

19.01.2005 21:13:24 / MA2000

Vefsíður / Bloggsíður óskast :-)

Jæja... þá eru komnar inn vef- og bloggsíður nokkurra úr árgangnum okkar, þannig að þið getið farið að njósna um gamla bekkjarfélaga 8|.  Þetta er náttúrulega bara brota brot af þeim síðum sem til eru, en ég er bara ekki með upplýsingar um fleiri síður en þetta!

Ef þið viljið fá síðuna ykkar hérna inn setjið hana þá bara inn sem komment eða sendið hana til mín með tölvupósti á netfangið ma2000@gretar-orri.com og ég skelli þeim inn.

Það væri líka gaman ef einhverjir luma á skemmtilegum ljósmyndum frá MA árunum sem væri hægt að setja inn á síðuna í einhverskonar myndaalbúm. Hvernig líst ykkur á það?
Myndirnar getið þið sent á mig á sama netfang og ofan, ég myndi síðan með tíð og tíma setja þær uppí albúm.  Skemmtilegast væri náttúrulega ef smá lýsing á myndunum fylgdi með og best væri auðvitað að lýsing fylgdi hverri mynd, svo að allir viti hvað er á myndunum ;)

Með kveðju frá Skaufabæ,
Grétar Orri.

P.s.  Það er ekki að spyrja að því að T-arar eru að vinna bloggsíðukeppnina :haha:


» 85 hafa sagt sína skoðun

19.01.2005 14:22:33 / MA2000

Nefndin

Jæja þá er nefndin komin á hreint og því verður að ákveða fundartíma. Ég bið þá sem vilja fá aðgang að síðunni og þá sem eru í nefnd að senda mér e-mail á okg@hi.is og láta mig vita hvaða tími hentar þeim best að hittast. Rósa flýgur bara suður til að koma á fundinn:) Nefndin er því svohljóðandi ef einhverjir eru í vafa; Lára fyrir 4A, Rósa fyrir 4F, ég (Lóa) fyrir 4G, Ásta fyrir 4T, Heiður fyrir 4U og Stebbi fyrir 4VX. Glæsilegt:) Kveðja, Lóa

» 45 hafa sagt sína skoðun

11.01.2005 21:11:50 / MA2000

Mikið er gaman að sjá....

hvað fólk er fljótt að taka við sér og mér sýnist að fréttir af síðunni berist fljótt á milli manna. En eins og Rósa kom inn á þá er um að gera að fá fólk til að bjóða sig fram til að vera með okkur í nefndinni. Eins og ég er búin að hugsa þetta ætti það ekki að vera mikil vinna í að skipuleggja smá dagskrá en samt sem áður mikilvægt að fá einn úr hverjum bekk. Stebbi ertu til í að vera með í nefndinni eins og Ingó stakk uppá? Kveðja, Lóa

» 139 hafa sagt sína skoðun

10.01.2005 15:56:09 / MA2000

5 ára afmæli :)

Sæl og blessuð...nú þarf að fara að skipuleggja 5 ára útskriftarafmælið okkar. Eins og staðan er í dag eru bara ég (fyrir 4-F) og Lóa (fyrir 4-G) í nefndinni og vantar okkur einn fulltrúa úr hverjum bekk. Ef búið er að ákveða hverjir eru í nefndinni fyrir hvern bekk, viljum við endilega fá að vita það en ef ekki megið þið endilega bjóða ykkur fram til að vinna í þessu með okkur. Veriði svo dugleg að láta vita af síðunni og kommenta og koma með ykkar hugmyndir.

Kveðja, Rósa María


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2005 15:35:28 / MA2000

Ný síða vígð!

Nú styttist í að við höldum upp á 5 ára stúdentsafmæli okkar þann 16.júní. Stefnt er að því að hafa e-ð djamm dagana á undan og vonast er til að sem flestir geti mætt. Síðan er enn í vinnslu og þar sem ég er ekkert mjög góð í svona bloggsíðum þá er hún nú ekki orðin fullkomin ennþá eins og sjá má. En það á nú allt eftir að lagast. Ég er að vonast til að geta sett bloggsíður og netföng hér til hliðar þar sem bekkjarlistarnir eru þannig að auðveldara sé að ná í alla þegar nær dregur. En stefnan er að hér verði auglýst allt það sem þarf að auglýsa þannig að ég vonast til að þið verðið dugleg að láta hvort annað vita af þessari siðu. Kveðja, Lóa

» 12 hafa sagt sína skoðun